Bæjarstjórn Hornarfjarðar hefur fellt niður gatnagerðargjöld til að hvetja til húsbygginga í sveitarfélaginu, en mikill skortur er á húsnæði, sérstaklega minni íbúðum. Þessu greinir RÚV frá.

Þórhildur Ásta Magnúsdóttir, formaður bæjarráðs Hornafjarðar, segir fyrirkomulagið verða þannig að húsbyggjandi greiðir 100 þúsund króna tryggingu sem fæst endurgreidd þegar byggingarleyfi er gefið út. Lóðarhafi þarf sjálfur að greiða gjöld fyrir að tengjast veitum. Hann þarf þar að auki að skuldbinda sig til að nýta húsnæðið ekki undir heimagistingu eða aðra starfsleyfisskylda starfsemi í þrjú ár eftir lokaúttekt. Hún segir það einmitt vera heimagistingu sem valdi húsnæðisskortinum á Höfn. Fólk sem hafi áhuga á að koma á svæðið til að vinna eigi ekki möguleika á að fá húsnæði á leigu. Það sé eiginlega allt farið í heima- og íbúðagistingu.

Niðurfelling gatnagerðargjald stendur til boða í tvö ár. Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Hornafjarðar, segir að gatnagerðargjöld taki mið af fermetrafjölda, en gróflega megi áætla að gjöld af um 130 fermetra raðhúsi hefðu orðið um ein milljón króna.