Góður tími er fyrir íslenska fjárfesta til kaupa á eignum í sænskum krónum þar sem meiri líkur en minni eru á að sænska krónan hækki gagnvart þeirri íslensku til lengri tíma litið, segir greiningardeild Glitnis. En gengi sænsku krónunnar hefur lækkað nokkuð ört gagnvart þeirri íslensku undanfarnar vikur.

"Orsakast það bæði af gengishækkun íslensku krónunnar, og eins hinu að sænska krónan hefur gefið nokkuð eftir gagnvart ýmsum helstu gjaldmiðlum," segir greiningardeildin.

Hún segir vexti í Svíþjóð nú þeir næst lægstu í Evrópu, eða 3,25%, og hafa svonefnd vaxtamunarviðskipti veikt krónuna þar töluvert að undanförnu í kjölfar þess að vaxtaferill seðlabanka Svíþjóðar hefur verið undir væntingum markaðsaðila.