Pétur Guðjónsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Marel, nýtti í gær kauprétt sinn hjá fyrirtækinu þegar hann keypti hálfa milljón hluta í félaginu fyrir 42,9 milljónir króna. Kaupin voru gerð á genginum 85,3 krónur á hlut, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu til Kauphallarinnar. Hann seldi hlutabréfin aftur samdægurs á genginu 136,3 krónur á hlut fyrir rúma 68,1 milljón króna.

Mismunurinn af viðskiptunum nam um 25 milljónum króna.