Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 2,61% í dag og endaði í 1.756 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,58% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair, eða um 3,85% í viðskiptum sem hljóða upp á 292 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 31 krónu á hlut. Gengi bréfa Marel hækkaði þá einnig, eða um 3,25% í 226 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 254 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 0,34% í viðskiptum sem hljóða upp á 59 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 29,7 krónur. Ekki lækkaði gengi annarra hlutabréfa á markaðnum í dag.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,4 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 13,6 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,4% í dag í 1,4 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 5,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,6% í 4,9 milljarða króna viðskiptum.