Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,12% í dag og endaði í 1,786 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 36,25%.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eimskipa, eða um 0,97% í 102 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Marel hækkaði einnig um 0,45% í 144 milljóna króna viðskiptum, og gengi bréfa Regins hækkaði um 1,32% í 35 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair um 1,07% í 458 milljóna króna viðskiptum. Þar á eftir kemur Vodafone, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 0,53% í viðskiptum upp á 52 milljónir króna. Gengi bréfa HB Granda lækkaði svo um 0,36%% í viðskiptum sem hljóða aðeins upp á 5 milljónir króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 1,1 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 1,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,7% í dag í 6,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,9% í 1,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,5% í 5,6 milljarða króna viðskiptum.