Bananar ehf. sem er eitt af átta dótturfélögum í Hagasamstæðunni högnuðust um meira en milljarð króna fyrirskatta 2010-2011. Sölutölur eru ekki gefnar upp en ljóst er að sala á ávöxtum og grænmeti skiptir miklu máli fyrir afkomu Haga í heild. Í samstæðu Haga eru alls átta fyrirtæki sem til samans reka einar 62 verslanir, sex smásölufyrirtæki og fjögur vöruhús. Langstærsta einingin innan Hagasamstæðunnar er dótturfélagið Hagar verslanir ehf., sem reka Hagkaup, Bónus, Útilíf, vöruhúsið Aðföng og Hýsingu vöruhótel. Velta þess nam um 30,6 milljörðum króna en hagnaður af þeirri starfsemi er þó mjög svipaður og hjá Banönum þótt velta þess sé án efa miklum mun minni.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.