Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,94% í dag og endaði í 1.776,66 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 5,52% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 1,60% í viðskiptum sem hljóða upp á 920 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 47,7 krónum á hlut. Gengi bréfa Marel hækkaði þá einnig, eða um 1,57% í 379 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 259 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 0,17 í viðskiptum sem hljóða upp á 146 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 29,60 krónur. Gengi bréfa VÍS lækkaði þá einnig um 0,19%, en velta með bréfin var 38,6 milljónir króna. Hvert bréf kostar þá 7,72 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 2,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,9% í dag í 2,4 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 2,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 1,6 milljarða króna viðskiptum.