Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,46% í dag og endaði í 1,852 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 41,35%.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Össurar, eða um 1,09% í 184 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,52% í 116 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa bréfa Haga eða um 0,66% en í aðeins 4 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa í TM lækkaði um 0,21% í einungis 3 milljóna viðskiptum og gengi bréfa í VÍS um 0,11% í 33 milljóna króna víðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmar 663 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 1,6 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í dag í 0,4 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 1 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,7 milljarða króna viðskiptum.