Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 2,08% í dag og endaði í 1,815 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,47% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 3,07% í 772 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 235 krónur. Gengi bréfa Icelandair hækkaði þá einnig, eða um 2,50% í 658 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 34,80 krónum. Gengi bréfa Símans hækkaði um 0,85% í 392 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf nemur 3,55 krónum.

Ekki varð nein lækkun á gengi hlutabréfa í dag. Hlutabréfaverð fór þá einnig hækkandi á heimsmarkaðnum, en olíuverð hefur hækkað um rúm 6% í dag.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæpir 3,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 9 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 2,1% í dag í 2,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 3 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 1,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,8 milljarða króna viðskiptum.