Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,39% í dag og endaði í 1,808 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,82% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair, eða um 1,02% í 520 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 34,70 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 1,49% í 252 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 nemur þá 47,60 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Sjóvár um 1,03% í 288 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Sjóvár er þá 11,50 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Haga um 0,76% í 193 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 45,80 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag voru tæpar 2,1 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 5,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 2,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 5,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,5% í 1,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 4,2 milljarða króna viðskiptum.