Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,13% í dag og endaði í 1,810 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,69% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 2,73% í 173 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 48,9 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 0,72% í 263 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair nemur þá 34,95 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Vodafone um 2,73% í 147 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Vodafone er þá 46,4 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Marel um 1,05% í 54 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 234,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmur milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 1,0 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 4,3 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 1,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 3,1 milljarða króna viðskiptum.