Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,22% í dag og endaði í 1,885 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,25% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 2,5% í viðskiptum sem hljóða upp á einn milljarð króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 36,95 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Haga, eða um 0,65% í 304 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Haga nemur þá 46,45 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Reita um 0,12% í 476 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Reita er þá 84,5 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa N1 í dag, eða um 0,34% í viðskiptum sem hljóða upp á 164 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 58,4 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 3,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,5 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,1% í dag í 3,3 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 1,1 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,1 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 1 milljarða viðskiptum.