Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,09% í dag og endaði í 1,886 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,34% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Sjóvár, eða um 2,39% í viðskiptum sem hljóða upp á 65 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 12,85 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,14% í 754 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group nemur þá 37 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Eimskips um 0,85% í 89 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Eimskips er þá 232 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Símans í dag, eða um 0,61% í viðskiptum sem hljóða upp á 150 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 3,28 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,5 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,2 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 1,6 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 1,7 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 1,3 milljarða króna viðskiptum.