Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,59% í dag og endaði í 1913 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,73% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 3,01% í viðskiptum sem hljóða upp á 456 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 65 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,72% í 1,1 milljarðs króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group er þá 38,35 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Marel, eða um 1,02% í 160 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Marel er þá 243 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Eikar í dag, eða um 0,23% í viðskiptum sem hljóða upp á 103 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 8,52 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 5,6 milljarðar króna.