Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,95% í dag og endaði í 1880,91 stigi. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,03% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,35% í viðskiptum sem hljóða upp á 662 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 37,5 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 1,72% í 126 milljarðs króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 er þá 62,15 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Nýherja, eða um 0,3% í litlum 300 þúsund króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Nýherja er þá 16,85 krónur. Gengi bréfa Nýherja var það eina sem lækkaði í viðskiptum dagsins.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,4 milljarðar króna.