Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,64% í dag og endaði í 1872,84 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 0,4% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 1,06% í viðskiptum sem hljóða upp á 260 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 237,5 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Reita, eða um 1,05% í 257 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Reita er þá 87 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 0,68% í 363 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut HB Granda er 36,55 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,4 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 10,2 milljarðar króna.