Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,28% í dag og endaði í 1886,20 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,31% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair, eða um 0,47% í viðskiptum sem hljóða upp á 365 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 37,8 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Regins, eða um 2,01% í 217 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Regins er þá 22,85 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Haga, eða um 0,93% í 186 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Haga er 48,05 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Reita um 0,52% í viðskiptum upp á 134 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 86,6 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega tveir milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,35 milljarðar króna.