Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,14% í dag og endaði í 1909,32 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,54% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 1,45% í viðskiptum sem hljóða upp á 422 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 49,10 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,52% í 661 milljónar króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair er þá 38,40 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Vodafone, eða um 0,11% í 126 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Vodafone er 44,90 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Marel um 0,41% í viðskiptum upp á 75 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 66,2 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,4 milljarðar króna.