Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,06% í dag og endaði í 1922,99 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 2,27% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 4,14% í viðskiptum sem hljóða upp á 1,3 milljarð króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 251,5 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 0,39% í 349 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair er þá 38,3 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Vodafone, eða um 0,88% í 472 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Vodafone er 44,8 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Símans um 0,32% í viðskiptum upp á 96 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 3,12 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,6 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 1,9 milljarðar króna.