Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,59% í dag og endaði í 1888,29 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,42% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Símans, eða um 2,67% í viðskiptum sem hljóða upp á 579 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 3,08 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,53% í 988 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair er þá 36,4 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Haga, eða um 0,82% í 593 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Haga er 48,4 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa N1 um 0,15% í viðskiptum upp á 150 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 68,2 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 3,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,3% í dag í 3,5 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 4,7 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 0,1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 4,6 milljarða króna viðskiptum.