Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,66% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á mörkuðum nam 12,2 milljörðum og þar af var velta á hlutabréfamarkaði tæpur 1,9 milljarður og velta á skuldabréfamarkaði tæpar 10,4 milljarðar. Úrvalsvísitlan stendur því í 1.713,41 stigum.

Flest félög hækkuðu í viðskiptum dagsins að tveimur undanskildum. Mest hækkun var á gengi bréfa Eimskipafélags Íslands, en þau hækkuðu um 3,25% í 501,5 milljón króna viðskiptum. Einnig var talsverð hækkun á bréfum Sjóvá en þau hækkuðu um 3,18% í 133 milljón króna viðskiptum.

Mest lækkun var á gengi bréfa í Fjarskiptum, móðurfélagi Vodafone, en þau lækkuðu um 0,55% í litlum viðskiptum.