Heildarviðskipti með hlutabréf á aðalmarkaði Kauphallarinnar námu 2,3 milljörðum króna í dag, og úrvalsvísitalan, OMXI8, hækkaði um 0,72%.

Af 18 skráðum félögum hækkuðu 14 í viðskiptum dagsins.

Mest hækkuðu bréf Heimavalla, um 3,6% í 34 milljón króna viðskiptum, en þar næst komu bréf Origo með 3,41% hækkun í 64 milljón króna viðskiptum, og Haga með 3,34% hækkun í 117 milljóna viðskiptum.

Icelandair lækkaði eitt félaga, eða um 3,39% í 446 milljón króna viðskiptum.