Gengi hlutabréfa Eimskips og Haga hækkaði um 1,34% í Kauphöllinni í dag. Velta með hlutabréf Haga nam 137 milljónum króna en Eimskips 115 milljónum króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,19% og Marel um 1,16%, bréf TM fóru upp um 0,83%, Icelandair Group um 0,66% og Regins um 0,14%.

Engin lækkun var á hlutabréfamarkaði í Kauphöllinni í dag.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,01% og endaði hún í tæpum 1.153 stigum. Talsvert meiri velta var með hlutabréf í dag en í gær. Nú nam hún 853 milljónum króna samanborið við 116 milljónir í gær.