Viðskiptavinum Arion banka býðst nú að leggja sparnað sinn inn á vistvænan innlánsreikning sem kallast Grænn vöxtur. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

„Um er að ræða nýjung hér á landi þar sem einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki geta lagt fjármuni inn á reikning sem eingöngu verður ráðstafað til fjármögnunar umhverfisvænna verkefna. Grænn vöxtur er óverðtryggður innlánsreikningur sem er óbundinn og því eru innlánin laus til úttektar hvenær sem er," segir í tilkynningunni.

„Það er eitt meginhlutverk banka að miðla fjármagni frá þeim sem eiga sparnað til þeirra sem þurfa lán og gegna innlán þar mikilvægu hlutverki. Öllum innlánum, sem lögð eru inn á Grænan vöxt, verður miðlað til vistvænna verkefna í samræmi við umgjörð Arion banka um græn innlán. Fyrst um sinn verður innlánunum miðlað í lán til kaupa á bílum sem nýta umhverfisvæna orkugjafa."

Fyrirtækið Circular Solutions hefur tekið út umgjörð bankans um græn innlán. Fyrirtækið gegnir hlutverki óháðs aðila og mun gera árlega úttekt á því hve vel fjármögnuð verkefni uppfylla skilyrði umgjarðarinnar og meta umhverfisáhrif þeirra.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Græn innlán Arion banka eru hugsuð fyrir alla sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfisvænni framtíðar og það á vel við að byrja á grænum bílalánum þar sem nánast allt rafmagn hér á landi er framleitt með sjálfbærum hætti. Við höfum sett okkur umhverfis- og loftslagsstefnu sem felur í sér að við ætlum að beina sjónum okkar að verkefnum sem snúa að sjálfbærri þróun og grænni innviðauppbyggingu og þessi nýi innlánsreikningur er einn liður í því. Við viljum að Ísland standi við skuldbindingar sínar í umhverfis- og loftslagsmálum og höfum fullan hug á að auðvelda viðskiptavinum okkar að velja umhverfisvænni kosti. Í baráttunni við loftslagsbreytingarnar er hvert skref mikilvægt."