Hlutabréfamarkaðir Evrópu eru nú lokaðir og þegar litið er yfir lista helstu vísitalna er græni liturinn alls ráðandi, í raun gildir einu hvert litið er, alls staðar voru hækkanir. Þannig hækkaði breska FTSE-vísitalan um 0,4% og var hún þó veikust af öllum. DAX hækkaði um 2,8%, CAC um 1,8 og EuroStoxx um 2,8%.

Í Stokkhólmi hækkaði OMXS30 um 1,23%.