Bjartsýni virtist ríkja meðal fjárfesta á mörkuðum í Evrópu í morgun og hækkuðu allar hlutabréfavísitölur strax eftir opnun markaða þrátt fyrir lækkun í Asíu í nótt. FTSE í Lundúnum hafði hækkað um 0,75% skömmu eftir opnun, Dax í Frankfurt um meira en 1% og CAC í París um 0,7%.