Bandaríski fjölmiðlarisinn Turner Broadcastinn tilkynnti í dag að ákveðið hafi verið að ráðast í framleiðslu á fjórðu sjónvarpsseríunni um ævintýri Íþróttaálfsins og íbúa Latabæjar. Framleiðslu á þriðju seríunni lauk nýverið og hefjast sýningar á henni í Bretlandi í vor. Þættirnir verða svo sýndir um heim allan síðar á árinu.

Turner Broadcasting keypti framleiðslu Latabæjarþáttanna með manni og mús í september árið 2011 í kringum fjárhagslega skipulagningu á rekstrinum.