Sú staðreynd að Magnus Linklater blaðamaður breska blaðsins The Times hefur umfjöllun sína um Alistair Darling með því að benda á að það markverðasta við manninn sé að hann er Pink Floyd aðdáandi sem hefur nýlega tekið upp á því að hlusta á Coldplay bendir ekki til þess að þar sé ekki maður við suðumark á ferð. Enda er Darling sagður maður grandvar og varkár.

Eflaust fagna fjárfestar því að ekki tilþrifameiri maður hafi tekið við embætti fjármálaráðherra Bretlands af Gordon Brown. Blaðamenn Financial Times gera svo mikið úr litleysi hans að þeir segja að hann komi fyrir eins róbot. Hinsvegar bæta þeir við að hann sé í raun bráðskarpur og fyndinn.

Nánar um Darling í Viðskiptablaðinu í dag.