Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line hefur sent Samkeppniseftirlitinu kæru vegna misnotkunar Isavia á einokunaraðstöðu á Keflavíkurflugvelli að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Gray Line telur að fyrirhuguð gjaldtaka Isavia af hópferðabílum við flugstöðina sé margfalt hærri en eðlilegt geti talist og stríði alvarlega gegn hagsmunum neytenda.

Gray Line segir í kæru sinni að á Heathrow flugvelli sé tekið 3.900 kr. gjald fyrir stóra hópferðabíla sem sækja farþega. Isavia ætlar hins vegar frá og með 1. mars næstkomandi að taka 19.900 kr. fyrir hvert skipti sem stór rúta sækir farþega í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gjald Isavia er fimmfalt hærra en á Heathrow. Á flugvöllum á borð við Kaupmannahöfn, Billund og Stokkhólm og fleiri á Norðurlöndunum er ekkert slíkt gjald tekið og á Gatwick flugvelli er það 2.400 kr.

Gjaldið á að innheimta af hópferðabílum sem nýta svokölluð fjarstæði, langt frá flugstöðinni. Samkvæmt tilkynningunni er gjaldtakan til viðbótar við nýlegan samning Isavia við tvö hópferðafyrirtæki sem fá aðstöðu upp við flugstöðina og greiða þau 33-42% af farmiðasölu sinni til Isavia fyrir hana, eða rúmlega 300 milljónir króna á ári.

„Ofurgjaldtaka í skjóli einokunar lendir að sjálfsögðu á engum öðrum en flugfarþegum. Gera má ráð fyrir að fargjaldið þurfi að hækka um 30-50% hjá öllum hópferðafyrirtækjunum til að Isavia fái sitt. Farþegar fá ekkert meiri eða betri þjónustu. Isavia tekur þá einfaldlega í gíslingu og heimtar lausnargjald svo þeir komist frá flugstöðinni,“ er haft eftir Þóri Garðarssyni stjórnarformanni Gray Line í tilkynningunni.

Gray Line fer þess á leit við Samkeppniseftirlitið að það taki ákvörðun til bráðabirgða um að stöðva fyrirhugaða gjaldtöku Isavia. Gray Line bendir á að akstur með farþega frá flugstöðinni sé hluti af heildarviðskiptum sem fyrirtæki í ferðaþjónustu hafi byggt upp erlendis með miklum markaðskostnaði og fjárfestingum árum saman. Skyndileg og mikil hækkun stefni þessum viðskiptum í hættu svo óbætanlegur skaði geti hlotist af. Jafnframt sé vegið að umhverfisvænum og hagkvæmum ferðamáta milli flugvallarins og höfuðborgarsvæðisins.

Í kærunni bendir Gray Line á að samkvæmt frétt Isavia sé ætlunin að láta hin háu gjöld á farþega hópferðabíla niðurgreiða samkeppni við erlenda flugvelli um nýjar flugleiðir og flugfélög. Telur Gray Line þessi áform stríða gegn banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu og koma niður á samkeppni í farþegaflutningum til og frá eina alþjóðaflugvelli landsins.