Green Diamond International hefur opnað skrifstofu í Kína vegna framleiðslu sinnar á skóm með sérstökum sólum sem veita meira viðnám en þekkist í öðrum skóm að því er kemur fram í frétt félagsins.

Þar kemur einnig fram að samhliða opnun skrifstofunnar í Kína hafa verið gerðir samstarfssamningar við verksmiðjur á svæðinu vegna framleiðslunnar. Fyrstu vörur frá Green Diamond eru væntanlegar í verslanir á árinu.