Flugfélagið Greenland Express stefnir að því að hefja millilandaflug um Akureyri 25. júní næstkomandi. Flogið verður á sunnudögum og miðvikudögum. Heimahöfn félagsins er í Álaborg og þess vegna verður flogið þaðan til Kaupmannahafnar og áfram til Akureyrar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Greeland Express.

Flugvélin er nýuppgerð Fokker 100. Vélin tekur 100 manns í sæti og er afar þægileg til ferðalaga. Félagið hefur yfir tveimur flugvélum að ráða og getur því tekið að sér leiguflug fyrir fyrirtæki, ferðaskrifstofur eða Starfsmannafélög.

Greenland Express bindur miklar vonir við Akureyri sem framtíðaráfangastað enda hafa viðbrögðin verið framar öllum vonum, þótt starfsemin sé ekki ennþá komin af stað.