Tæknifyrirtækið Greenqloud hefur frá og með deginum í dag formlega lokað skýjaþjónustu fyrirtækisins en héðan í frá mun fyrirtækið einbeita sér að þróun og sölu á Qstack stýrihugbúnaðinum.

Þeim viðskiptavinum Greenqloud sem voru í skýjaþjónustu fyrirtækisins gafst kostur á að flytja sig yfir í opnu skýjaþjónustu Advania, samstarfsaðila Greenqloud.

Greenqloud hefur verið í örum vexti undanfarið en það var m.a. valið í hópi framsæknustu fyrirtækja Evrópu fyrir árið 2013.