Íslenska fyrirtækið GreenQloud var í ár tilnefnt sem eitt af 50 framsæknustu frumkvöðlafyrirtækjum heims á sviði upplýsingatækni og umhverfismála.  Verðlaunin nefnast CODE_n og eru haldin í tengslum við eina stærstu upplýsingatækniráðstefnu heims, CeBIT, sem haldin hefur verið árlega síðan 1986 í Hanover í Þýskalandi. 350 fyrirtæki víðsvegar að úr heiminum voru tilnefnd en 50 voru valin úr til að keppa til úrslita og kynna lausnir sínar á CeBIT.  GreenQloud var þar á meðal.

Fram kemur í tilkynningu að þýska stórfyrirtækið GFT stendur á bak við CODE_n,  samfélag frumkvöðlafyrirtækja sem vinna að lausnum á sviði upplýsingatækni. CODE_n verðlaunin 2013 eru fyrir frumkvöðlafyrirtæki sem eru með snjallar lausnir á vandamálum sem snúa að orkunotkun og upplýsingatækni. Kolefnislosun upplýsingatækniiðnaðarins um allan heim er orðin meiri en hjá flugiðnaðinum og miðað við vöxt upplýsingatæknigeirans þá stefnir í tvöföldun fyrir árið 2020.

Tryggvi Lárusson, annar stofnenda GreenQloud, sem jafnframt er tækni- og þróunarstjóri fyrirtækisins, kynnti lausnirnar sem fyrirtæki hans býður upp á á tæknisýningunni.