Kaupþing hf. greiðir hæstu opinberu gjöldin á þessu ári eða rúmlega 14,6 milljarða króna. Á eftir Kaupþingi kemur Landsbankinn með rúma 12,9 milljarða króna og greiðir hann um fimm milljörðum meira en gamli Landsbankinn, LBI, sem greiðir samstals rúmar 7,9 milljónir króna. Þetta kemur fram í upplýsingum frá ríkisskattstjóra sem hefur lokið álagninu opinberra gjalda ársins 2014.

Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu í árslok 2013 var 38.110. Alls sættu 10.859 lögaðilar áætlun en til samanburðar voru þeir 11.299 í fyrra.

Heildarálagning á lögaðila nemur 181.089.244.552 kr., en á árinu 2013 nam hún 121.322.881.575 kr. Nemur hækkunin því 49,3%.

Þessir greiða hæstu opinberu gjöldin:

  1. Kaupþing hf. 14.644.588.444
  2. Landsbankinn hf. 12.915.826.346
  3. Glitnir hf. 11.892.915.408
  4. Ríkissjóður Íslands 9.810.099.648
  5. LBI hf. 7.964.176.081
  6. Arion banki hf. 7.550.536.603
  7. GLB Holding ehf. 6.168.171.045
  8. Íslandsbanki hf. 5.575.353.828
  9. Reykjavíkurborg 3.253.062.402
  10. Eignasafn Seðlab. Íslands ehf. 2.108.524.112
  11. HB Grandi hf. 1.739.492.522
  12. Samherji hf. 1.688.842.216
  13. Síldarvinnslan hf. 1.387.769.242
  14. Norðurál Grundartangi ehf. 1.094.996.212
  15. Ísfélag Vestmannaeyja hf. 1.092.608.817
  16. Icelandair ehf. 963.679.204
  17. Össur hf. 911.262.214
  18. Skinney-Þinganes hf. 844.618.508
  19. Kópavogsbær 822.557.533
  20. Icelandair Group hf. 806.389.811
  21. Vátryggingafélag Íslands hf. 722.224.413
  22. Akureyrarkaupstaður 699.465.625
  23. Hagar verslanir ehf. 694.092.409
  24. Vinnslustöðin hf. 628.666.862
  25. Hafnarfjarðarkaupstaður 604.961.434
  26. FISK-Seafood ehf. 564.949.753
  27. Eskja hf. 533.172.237
  28. Reykjanesbær 528.034.118
  29. Isavia ohf. 462.049.918
  30. Samherji Ísland ehf. 442.688.302
  31. Borgun hf. 441.156.903
  32. Rammi hf. 434.606.543
  33. Logos slf. 418.348.677
  34. Sparisjóður Reykjavíkur/nág hf. 401.319.400
  35. Tryggingamiðstöðin hf. 387.727.069
  36. Brim hf. 386.060.955
  37. Alcoa Fjarðaál sf. 377.113.327
  38. Eimskip Ísland ehf. 375.901.755
  39. Advania hf. 371.479.904
  40. Marel Iceland ehf. 351.424.165