Þýska lágfargjaldaflugfélagið Air Berlin, mun frá og með deginum í dag þurfa að greiða lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli eina viku fram í tímann. Þetta kemur fram í frétt á vef Túrista .

Ákvörðunin kemur í kjölfarið á því að þýska flugfélagið óskaði eftir greiðslustöðvun í síðustu viku eins og Viðskiptablaðið greindi frá. Þýsk stjórnvöld veittu félaginu neyðarlán til næstu þriggja mánaða en mikil óvissa er með áframhaldandi rekstur félagsins.

Air Berlin hefur að jafnaði flogið tvisvar til þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann en auk þess er gert ráð fyrir nokkrum ferðu í hverri viku í vetur. Samkvæmt verðskrá Keflavíkurflugvallar þá kostar um 100 þúsund krónur að lenda miðlungsstórri farþegaþotu á Keflavíkurflugvelli.

Keflavíkurflugvöllur er ekki eini flugvöllurinn sem hefur farið fram á að félagið greiði lendingargjöld sín fyrirfram. Stjórnendur flugvallarins í Genf hafa farið fram á að lendingargjöld verið greidd fyrirfram. Verði það ekki gert mun flugstjórum félagsins verða fylgt í hraðbanka og þeir látnir taka út fyrir lendingargjöldunum sem nem um 55 þúsund krónum í svissnesku borginni.