Landsvirkjun greiðir upp skuldabréf að andvirði 50 milljónir Bandaríkjadala, eða sem svarar 5,7 milljörðum króna þann 20. október næstkomandi.

Nýtir fyrirtækið sér heimild til þess, og er uppgreiðslan liður í lausafjárstýringu félagsins.

Félagið hefur þegar tilkynnt skuldabréfaeigendum í gegnum kauphöllina í Lúxemborg, þar sem bréfið er skráð.