Fyrirtæki í Dublin Írlandi sem stofnað var af bandaríska vogunarsjóðunum Davidson Kempner, greiddi einungis 125 bandaríkjadali, eða sem nemur 14 þúsund krónum í skatt af eignum sem metnar eru á 8 milljarða dali, að því er fram kemur í frétt Irish Times .
Fyrirtækið Burlington Loan Management sem stofnað var til að fjárfesta í félögum í alvarlegum fjárhagsvanda í Evrópu á meðal annars skuldabréf í Glitni og Kaupþingi.
Auk þess keypti félagið Klakka frá Lindarhvoli, og er það því orðið meirihlutaeigandi í Lýsingu. Starfsmenn félagsins voru einungis tveir í landinu, en í apríl var stjórn félagsins flutt til Cayman eyja.
Engar tekjur að ráði eftir vaxtagreiðslur
Á síðasta ári sýndi bókhald félagsins nánast engar tekjur sem báru skatt, því það er sett þannig upp að nánast allur hagnaður þess er þurrkaður út með vaxtagjöldum til annarra fyrirtækja tengdum vogunarsjóðnum.
Bókhald fyrirtækisins sínir um 192 milljónir dala í fjárfestingartekjur og 500 milljón dali í aðrar tekjur, en allar þessar tekjur hverfa þegar á móti koma vaxtagjöld. Þegar þau hafa verið dregin frá tekjunum eru einungis 375 dalir í tekjur sem hægt er að skattleggja eftir, sem er sama upphæð og árið 2014.
Um 5% eigna félagsins eru á Íslandi
Fyrirtækið fylgir svokölluðum kafla 110 í skattalögum Írlands, en áður hafa vaknað deilur að með þeim geti fyrirtæki á vegum vogunarsjóða sloppið alfarið við skattgreiðslur. Þessi kafni var settur í lögin á sínum tíma til að draga alþjóðleg fjármálafyrirtæki til fjármálahverfisins í Dublin.
Um 20% af eignum félagsins eru í Írlandi sem vakið hefur upp gagnrýni stjórnmálamanna sem segja að félagið sé notað til skattaundanskota í landinu. Félagið á einnig miklar eignir í Bretlandi, eða 19% af heildareignum sínum og 15% í Þýskalandi. Athyglisvert er að um 5% af eignum þess eru á Íslandi, sem eru skuldabréf í Glitni og Kaupþing.
Þessi hluti írskrar skattalöggjafar hefur verið undir aukinni gagnrýni, en um 750 milljarðar evra eru í eignum fyrirtækja sem greiða skatta undir þessum lið skattalaganna.