Frá og með deginum í dag geta korthafar í viðskiptum við Arion banka sjálfir framkvæmt greiðsludreifingu á kreditkortareikningi sínum í Netbankanum eða Appinu að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá bankanum.

„Einnig er opnað fyrir möguleika viðskiptavina á að stofna sjálfir greiðslukort og sparnaðar- og gjaldeyrisreikninga í Netbankanum,“ segir í tilkynningunni.

„Þessar nýju lausnir eru afrakstur þróunarvinnu innan bankans sem miðar að því að auka þægindi viðskiptavina við að sinna sínum fjármálum. Nýju lausnirnar einfalda og flýta fyrir afgreiðslu þessara þjónustuþátta.

Ókeypis þjónusta til 1. apríl

Greiðsludreifing kreditkortareiknings verður aðgengileg í Netbankanum eða Appinu eftir að nýr reikningur er gefinn út og geta viðskiptavinir á einfaldan hátt valið hversu háa upphæð þeir greiða um næstu mánaðamót og á hve marga mánuði eftirstöðvarnar skiptast. Sem fyrr bera eftirstöðvarnar vexti.

Þjónustan er viðskiptavinum að kostnaðarlausu fram til 1. apríl. Þá verður sett á stofngjald þegar ný greiðsludreifing er búin til og færslugjald fyrir hvern mánuð sem upphæð er dreift á. Bæði gjöldin í Appinu og Netbanka verða 220 kr. Uppfæra þarf Arion appið til að fá aðgang að þessari virkni.

Vöruúrval aðgengilegt í netbanka

Í Netbankanum er nú sýnleg ný valmynd sem kallast Vöruúrval. Þar geta viðskiptavinir bankans skoðað úrval kreditkorta, debetkorta, sparnaðarreikninga og gjaldeyrisreikninga og stofnað vörurnar.

Í þeirri viðleitni að einfalda valið fyrir viðskiptavini og auðvelda þeim að taka ákvörðun, er vöruúrvalið sérsniðið að hverjum og einum viðskiptavini.

Enn fleiri stafrænar lausnir á leiðinni

Arion banki leggur mikla áherslu á að þróa stafrænar lausnir sem auðvelda viðskiptavinum að sinna fjármálum sínum hvar og hvenær sem er. Þessar lausnir eru liður í því.

Fyrr á árinu kynnti bankinn stafræna leið til að stofna til viðskipta við bankann í gegnum netið, án þess að þurfa að koma við í útibúi bankans. Á næstunni verða kynntar frekari nýjungar á þessu sviði.“