Arion banki hefur kynnt nýja stafræna leið fyrir viðskiptavini sína sem gerir þeim kleyft að fá greiðslumat á nokkrum míntum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá bankanum.

„Á vef bankans, arionbanki.is, geta nú allir þeir sem eiga rafræn skilríki fengið sjálfvirkt greiðslumat á örskotsstundu. Þeir sem standast greiðslumatið þurfa því ekki að gera fyrirvara um greiðslumat þegar kauptilboð er lagt fram,“ segir í tilkynningunni.

„Með nýju greiðslumati Arion banka þurfa umsækjendur ekki að safna saman launaseðlum, skattframtali og öðrum fylgiskjölum. Bankinn sér einfaldlega um að afla þessara upplýsinga rafrænt frá Creditinfo og RSK. Gagnaöflun og uppflettingar bankans byggjast á rafrænu samþykki umsækjenda.

Samhliða þessari breytingu mun kostnaður vegna greiðslumats lækka umtalsvert. Arion banki mun ekki innheimta sérstakt greiðslumatsgjald en umsækjendur þurfa að greiða þann kostnað sem til fellur vegna uppflettinga hjá þriðja aðila, m.a. í skuldastöðukerfi og ökutækjaskrá. Sá kostnaður er 3.200 kr. fyrir einstakling og 5.500 kr. fyrir hjón eða fólk í sambúð.

Þessi nýja lausn er afrakstur þróunarvinnu sem miðar að því að auka þægindi viðskiptavina og spara þeim dýrmætan tíma. Þegar hefur Arion banki kynnt stafrænar leiðir til að koma í viðskipti við bankann, greiðsludreifingu kreditkortareikninga á netinu og val á nýjum greiðslukortum sem og innlánareikningum. Arion banki mun áfram vinna að innleiðingu stafrænnar þjónustu.“