VIRK
VIRK
Öllum laungreiðendum ver að greiða 0,13% af heildarlaunum allra starfsmanna sinna til VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs frá og með 1.september 2011 samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í júní. Laungreiðendur skulu miða við iðgjaldastofn septembermánaðar 2011.

Fram að þessum tíma hefur einungis verið kveðið á um greiðsluskyldu í kjarasamningum en nú nær hún til allra launamanna samkvæmt lögum þar með talið til sjálfstæðra atvinnurekenda og þeirra sem ekki eru félagsmenn stéttarfélaga. Um þetta var samið í kjarasamningunum í vor.

Launagreiðendum ber að standa skil á iðgjaldinu til viðkomandi lífeyrissjóðs með sama hætti og gildir um lífeyrisiðgjald og munu lífeyrissjóðir síðan ráðstafa gjaldinu til VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs. Iðgjaldið veitir launamönnum réttindi til þjónustu hjá VIRK - Starfsendurhæfingarsjóði ef heilsubrestur veldur skertri starfsgetu.

Markmiðið er að auka getu til virkrar þátttöku á vinnumarkaði og draga þannig markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, starfsendurhæfingu og öðrum úrræðum af því er fram kemur í frétt á vefsíðu VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs.