Fallist var á beiðni kröfuhafa United Silicon um framlengingu á greiðslustöðvun félagsins fram til 22. janúar í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
United Silicon hefur verið í greiðslustöðvun frá því í lok ágúst en áður en greiðslustöðvunin var framlengd dugði heimild til þess fram til 4. desember, þ.e. í dag. Enn er unnið að tillögum um endurbætur á kísilveri United Silicon í Helguvík til að draga úr mengun sem stafar af framleiðslunni. Niðurstaða tæknilegra úttekta felur í sér umtalsverða fjárfestingaþörf í starfsemi verksmiðjunnar.
Í frétt á mbl.is segir að samkvæmt heimildum miðilsins hafi kostnaður Arion banka, stærsta hluthafa United Silicon numið meira en 600 milljónum yfir greiðslustöðvunartímann. Greint var frá því síðla nóvember að alþjóðlegir aðilar í kísiliðnaði hefðu sett sig í samband við Arion banka vegna United Silicon og lýst yfir áhuga á að skoða aðkomu að starfsemi verksmiðjunnar.
Kröfuhafar skoða einnig aðkomu að málum verksmiðjunnar en meðal þeirra eru Íslenskir aðalverktakar, Landsvirkjun, Reykjanesbær og ítalska fyrirtækið Tenova sem seldi United Silicon ljósbogaofninn. Þá hefur verið haft eftir bankastjóra Arion banka að ekki sé útilokað að United Silicon verði sett í þrot og bankinn gangi þá að sínum kröfum.
Um sextíu manns eru að störfum hjá verksmiðjunni en frá því framleiðsla var stöðvuð í byrjun september hefur starfsfólkið meðal annars sinnt viðhaldi og tíminn verið nýttur í að styrkja það í störfum.