Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs á tímabilinu janúar til mars 2015 versnaði verulega á milli ára og var neikvætt um tæpan 43,1 milljarð samanborið við jákvætt handbært fé upp á 3,7 milljarða króna árið 2014. Þetta kemur fram í frétt á vef Fjármálaráðuneytisins .

Þar hefur greiðsluuppgjör ríkissjóðs á tímabilinu verið birt, en það gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Í frétt ráðuneytisins segir að versnun uppgjörsins skýrist að stærstum hluta með útgreiðslum vegna leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærðar voru í lok árs 2014 en komu til greiðslu í janúar.

Innheimtar tekjur jukust um 9,1 milljarð króna á milli ára en greidd gjöld jukust um 22,6 milljarða króna.