Warren Buffett segist nú vera að íhuga að greiða hluthöfum í Berkshire Hathaway arð í fyrsta skipti í áratugi. Á fundi með hluthöfum játaði hann að líklega eigi þeir meiri peninga um þessar mundir en þeir hafi vit til að eyða skynsamlega og því væri allt eins skynsamlegt að greiða hluthöfum arð en félagið liggur nú með um 44 milljarða dollara í sjóðum sem Buffett segist ekki hafa fundið ásættanlega fjárfestinagkosti fyrir.
Þetta kom fram á fundi þessa mesta fjárfestingasnillings sögunnar með 19.000 hluthöfum sem mættu í árlega pílagrímsför sína til Omaha í Nebraska í Bandaríkjunum til að hlusta á Buffett útskýra ársreikninga fyrirtækisins, fjárfestingastefnu og hvað annað sem honum dettur í hug. Að sumra mati minna þessar samkomur meira á pílagrímsferðir en hefðbundin ársfund enda má segja að Buffett hafi verið óragur við að tjá skoðanir sínar og sýn á fjárfestingar. Í sjóðum félagsins eru núna 44 milljarðar bandaríkjadollara sem Buffett segist ekki hafa fundið ásættanlega fjárfestingakosti fyrir. Sagði hann að stærð fyrirtækisins skapaði því ákveðin vandamál en vegna stærðar þess henta ekki mjög margir fjárfestingakostir. Þá taldi hann að samkeppni um góða kosti hefði aukist og félagið hefði ekki verið tilbúið að teigja sig upp úr öllu valdi til að ná fjárfestingum.
Byggt á netúgáfu The Daly Telegraph