Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, skrifar greinaflokk um stöðu þjóðmála hér á landi. Greinarnar birtast í 6 hlutum. Hér birtist grein nr. 6.

Landið tekur að rísa !

- Land tækifæranna, grein 6.

Í greinarflokki þessum undir heitinu „Landið tekur að rísa” hefur verið fjallað um aðdraganda og orsakir hrunsins sem hér varð, aðgerðir ríkisstjórnarinnar því tengdu, árangur aðgerðanna, hin ærnu verkefni framundan og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ég tel mig hafa fært fyrir því traust og tölfræðilega studd rök að það gríðarmikla verkefni sem núverandi ríkisstjórn fékk í fangið er á góðri leið með að takast. Við erum á réttri leið þó heilmiklar brekkur séu eftir. Og þá að framtíðinni og þeirri staðreynd að tækifærin sem landið hefur til að endurreisa sig og skila okkur á ný lífskjörum eins og best þekkjast í heiminum eru óteljandi.

Ríkidæmi auðlindanna

Þó mikill styr hafi iðulega staðið um nýtingu og eignarhald á auðlindum landsins breytir það ekki þeirri staðreynd að fá dæmi þekkjast í veröldinni um 320 þúsund manna þjóð sem fengið hefur til búsetu og varðveislu land jafn ríkulega búið auðlindum. Íslensk efnahagslögsaga er gríðarstór með gjöfulustu fiskimiðum Atlantshafsins og landið er stórbrotið hlaðið náttúruperlum með mikla framtíðarmöguleika til búskapar og ferðamennsku . Við eigum ríkulegan orkuforða í vatnsafli og jarðhita sem býður upp á einstæða möguleika til þróunar sjálfbærs orkubúskapar. Hér er gnótt ferskvatns og lega landsins skapar fjölmörg tækifæri þegar sjónir beinast í auknum mæli að norðurslóðum.  Við erum lýðfræðilega ung og vel menntuð þjóð í nýuppbyggðu þróuðu samfélagi sem býr að sterkum innviðum. Allt eru þetta auðlindir sem ásamt öðru gera það að verkum að enginn ástæða er til að kvíða framtíðinni á Íslandi.

Sjávarútvegur

Eftir hrun hefur sjávarútvegurinn tryggilega sannað stöðu sína sem mikilvægasta undirstöðugrein þjóðarbúsins. Á árum útrásarvíkinga þótti fremur lítið til sjávarútvegsins koma en nú er öldin önnur. Tölur um aflaverðmæti fyrir árið 2009 liggja fyrir og endaði það í rúmum 115 milljörðum króna, þrátt fyrir ýmis áföll eins og sýkingu í síld og hálfgerðan loðnubrest. Veiði og vinnsla á makríl hefur orðið mikil búbót en aflaverðmæti makrílsins voru vel á fimmta milljarð árið 2009. Hjálpaði það til við að mæta áföllum í öðrum stofnum. Í ár hafa um 53% makrílaflans farið til manneldisvinnslu í stað 20% í fyrra og heildarverðmæti stefnir vel á annan tug milljarða.

Landbúnaður

Íslenskur landbúnaður hefur upp á að bjóða einstaka gæðavöru. Á árinu 2009 varð veruleg aukning á útflutningi landbúnaðarafurða en flutt var út fyrir vel á áttunda milljarð. Vaxandi eftirspurn og hagstæð gengisskráning skýra þennan vöxt. Landbúnaðurinn er útflutningsgrein í mikilli sókn sem skilar miklum hreinum gjaldeyristekjum. Vatnsútflutningur hefur einnig verið að sækja í sig veðrið og margir telja að vatnið verði brátt okkar mikilvægasta auðlind, okkar olía .

Orkan

Í vatnsafli og jarðhita og öðrum hreinum náttúrulegum orkugjöfum eins og vindi og sjávarföllum eiga Íslendingar varanlegar auðlindir. Svo fremi sem við semjum ekki af  okkur geta þær á komandi áratugum skilað okkur milljarðatuga auknum ávinningi. Ekki með því að virkja allt sem eftir er til einhæfrar orkufrekrar stóriðju. Þvert á móti með því að sækja aukinn arð gegnum endurnýjun samninga til framleiðslu sem er til staðar. Með því að beina sjónum að minni og meðalstórum kaupendum sem að jafnaði greiða hærra verð en fæst í risaheildsölusamningunum. Sjálfbær þróun okkar eigin orkubúskapar á þó að vera í öndvegi og gagnvart öllum nýtingarhugmyndum verður að setja þann fortakslausa fyrirvara að umhverfisáhrif séu í lágmarki, nýting ekki ágeng og ekki sé hróflað við þeim vatnasviðum og háhitasvæðum sem rétt er að vernda. Tryggja þarf að orkuauðlindir verði í samfélagslegri eigu og að rentan af þeim renni til þjóðarinnar sjálfrar. Orkufyrirtækin þurfa að einbeita sér að því að gera styttri orkusölusamninga og við fleiri og fjölbreyttari aðila. Orkuverð í heiminum er á sífelldri uppleið og fátt bendir til annars en sú þróun haldi áfram. Gagnaver, ylrækt, kísilflöguvinnsla, koltrefjavinnsla og álþynnuframleiðsla eru allt dæmi um starfsemi sem krefst hóflegrar orku og skilar mörgum störfum

Lífeyrissjóðir

Íslendingar eiga eitt best uppbyggða og öflugasta lífeyrissjóðakerfi í heiminum.  Eignir lífeyrissjóðanna á hvert mannsbarn eru taldar fullkomið ígildi þess sem Norðmenn eiga í sínum olíusjóði. Í  árslok 2009 var hrein eign lífeyrissjóðanna 119% af VLF. Ísland, Holland og Sviss skara fram úr í þessum efnum með hreina eign  lífeyrissjóða uppá um 120–130% af VLF. Til samanburðar eiga Grikkir 0%. Miklir erfiðleikar bíða margra annarra þjóða sem ekki eiga uppbyggðan lífeyrissparnað og þurfa auk þess að takast á við  breyttra aldurssamsetningu.

Ferðaþjónusta og flugrekstur

Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem vaxið hefur mest undanfarna áratugi, skilar þjóðarbúinu gífurlega miklum hreinum gjaldeyristekjum (svipuðum brúttótekjum og stóriðjan en mun meiri nettótekjum) og dreifir afrakstri sínum mjög víða um samfélagið. Gosið í Eyjafjallajökli minnti okkur á mikilvægi ferðaþjónustunnar. Með vel heppnuðu sameiginlegu markaðsátaki tókst að snúa tímabundinni vörn í  sókn á nýjan leik og margir telja möguleika Íslands nú meiri en nokkru sinni á sviði ferðaþjónustu.  Flugrekstur hefur lengi verið hlutfallslega stór í íslensku hagkerfi . Ánægjulegt er að sjá að öll íslensku flugfélögin eru nú að auka umsvif sín. Verði allt áfallalaust segir undirrituðum svo hugur að árið 2011 verði metár í íslenskum flugrekstri og ferðaþjónustu.

Skýr menntastefna til framtíðar

Á Íslandi er öflugt menntakerfi í anda félagshyggju. Hátt menntunarstig þjóðarinnar og aðgangur allra að góðri grunnmenntun leggja sterkann grunn að uppbyggingu og endurmótun samfélagsins. Við stöndum framarlega á heimsvísu í rannsóknum og kennslu á sviði, jarðfræði og jarðhita, sjávarútvegs og fleiri greina. Hugbúnaðargeirinn íslenski hefur vakið athygli víða um heim og íslenskt hugvit sækir fram. Tækni- og þekkingargreinar eru í sókn.

Ríkisstjórnin hefur einsett sér að standa þétt að baki menntakerfinu og ný og skýr menntastefna hefur verið mörkuð þar sem lögð er meiri áhersla á gagnrýna hugsun, lýðræði, jafnrétti, sjálfbærni og skapandi starf en áður hefur verið gert. Hér verður látið staðar numið þó nægir séu möguleikarnir og tækifærin til að reifa. Ekki er tilviljun að endað er á menntamálum, þar leggjum við grunninn.

Land tækifæranna með bjarta framtíð

En hvernig samfélag viljum við svo í raun og veru byggja upp úr rústum efnahagsáfallsins fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir? Hvaða gildi viljum við leggja til grundvallar þegar við endurmótum samfélagsgerðina, hvernig á sjálfsmynd okkar að vera? Eitt er skýrt. Ekkert okkar vill sjá hliðstæða atburði og þá sem gerðust hér haustið 2008 endurtaka sig. Ef einhverjir sakna tíðarandans frá 2007 er undirritaður í öllu falli ekki þeirra á meðal. Skiljum græðgisvæðinguna, óhófið og hrokafullar hugmyndir um okkur sjálf og ímyndaða yfirburði okkar eftir á öskuhaugum sögunnar. Það er manneskjulegt, heiðarlegt og hófsamlegt velferðarsamfélag sem við viljum, opið og lýðræðislegt, byggt á valddreifingu og góðri sátt við náttúruna og aðra menn. Þangað viljum við stefna og Landið er að rísa.

Steingrímur J. Sigfússon

höfundur er fjármálaráðherra