Á fundi sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ásamt fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, átti í gærkvöldi með fulltrúum samninganefnda sjómanna og útvegsamanna var lagt fram tillaga um að greina skattalega meðferð fæðispeninga og fæðiskostnaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu .

Þar segir meðal annars: „Í tilefni af umræðu sem upp hefur komið í tengslum við kjaradeilu sjómanna og útgerðarmanna um greiðslu fæðiskostnaðar, skattskyldu fæðispeninga og mat á hlunnindum í því sambandi lýsa stjórnvöld sig reiðubúin til þess að fram fari heildstæð greining á því með hvernig farið er almennt með fæðiskostnað og greiðslur vegna fæðis í skattalegu tilliti. Slík greining verði unnin í samvinnu við deiluaðila og e.a. önnur samtök launafólks og vinnuveitenda.“

Markmið greiningarinnar yrði að tryggja áfram einfalda og sanngjarna skattaframkvæmd og að jafnræði sé gætt milli launþega hvað varðar skattalega meðferð greiðslna og hlunninda vegna fæðiskostnaðar.

Niðurstöður koma til með að liggja fyrir eigi síðar en í lok apríl næstkomandi, þannig að tími gefst til lagabreytinga á yfirstandandi þingi, ef talin er þörf á þeim, segir að lokum í fréttatilkynningunni.