Tölvupóstsamskipti milli helstu stjórnenda FL Group sýna að eignir sem settar voru inn í Northern Travel Holding (NTH) í lok árs 2006 voru vísvitandi ofmetnar til að sýna fram á blekkjandi eignarstöðu á efnahagsreikningi þeirra félaga sem að viðskiptinum komu. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru danska flugfélagið Sterling og Iceland Express.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinarflokki um NTH-viðskiptin sem Viðskiptablaðið mun birta á næstu þremur vikum. Fyrsti hluti hans mun birtist í gær. Sá næsti mun birtast næstkomandi fimmtudag.

Hluti póstanna mun verða birtur á heimasíðu Viðskiptablaðsins á næstu dögum.

Tölvupóstur 1.

Frá: Jóni Sigurðssyni

Sendur: 6. nóvember 2006 klukkan 23:27

Til: Einars Þorsteinssonar

Efni: RE: ScanTravel

Setjum password á þetta.

Atriði sem við þurfum að skoða:

* Erum við sáttir við þennan strúktúr? Velti fyrir mér hvort við eigum að heimta seljendalán á móti ferðaskrifstofum.

*  Er ofmat á IE jafnmikið og á ST, hlutfallslega? Það er lykilatriði.

* Vextir á sellers loan, 15-20% raunhæfara. 30% mun aldrei gerast. Þurfum að stilla upp einhverju ímynduðu IRR casei eftir 2-3 ár. * Þurfum að hafa í shareholders agreement hvernig verður með frekari skuldsetningu á félaginu og slíkt.

* Þarf að tryggja amk. equal treatment á seljendalánum. Veit ekki alveg hvað það er gert. Kannski þarf að gera sérstaka lánasamninga um þetta, þar sem þetta eru miklar upphæðir.

* Lista upp allar ábyrgðir sem FL hefur veitt. Newco verður að taka það yfir.

Scantravel varð að Northern Travel Holding

Jón og Einar voru framkvæmdastjórar hjá FL Group á þeim tíma sem pósturinn var sendur og því á meðal æðstu stjórnenda félagsins. Hannes Smárason var forstjóri FL Group þegar ofangreind samskipti áttu sér stað. Scantravel var vinnuheitið á verkefninu sem síðar leiddi til stofnun Northern Travel Holding (NTH). Newco er í þessu sambandi notað yfir nýja félagið, sem síðar varð NTH. Skammstöfunin IE stendur fyrir Iceland Express og ST fyrir Sterling.