Verðbólguhorfur næstu mánuðu eru umtalsvert verri en mat Seðlabankans hljóðar upp á, að sögn greiningardeildar Arion banka. Peningastefnunefnd mun þrátt fyrir það ekki hækka stýrivexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum í mars heldur bíða fram í maí og hækka þá vextina um 25 punkta. Greiningardeildin spáir því að stýrivextir verði hækkaðir um 75 punkta á árinu öllu.
Í Markaðspunktum greiningardeildarinnar segir að það komi skemmtilega á óvart að Peningastefnunefndin hafi ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 4,75% að sinni. Deildin, líkt og fleiri greiningaraðilar, gerði nefnilega ráð fyrir 25 punkta hækkun vaxta.
Stýrivextir hækkaðir í maí
Deildin bendir á það í Markaðspunktum að í bráðabirgðaspá hennar sé gert ráð fyrir ríflega 6,4% meðaltalsverðógu á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við 6,1% spá Seðlabankans. Útlitið gefur lítið tilefni til bjartsýni, að mati greiningardeildarinnar sem tekur fram að ef horft er á einfalt gengislíkan næsta ári þar sem gert sé ráð fyrir óbreyttu gengi og engum utanaðkomandi þáttum hvort heldur er til hækkunar eða lækkunar þá verði verðbólga að meðaltali 5,6% á árinu.
„Ef marka má líkanið og ef veiking krónunnar gengur ekki til baka er líklegt að Seðlabankinn stígi á bremsuna fljótlega,“ segir í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka.