Greining Glitnis gerir ráð fyrir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,6% milli maí og júní. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 12,3% í 12,4%.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

„Í spá sem birt var 2. maí gerðum við ráð fyrir að VNV myndi hækka um 0,4% í júní. Ástæða þess að við spáum nú meiri verbólgu orsakast fyrst og fremst af því að gengi krónunnar hefur gefið eftir á ný sem mun koma fram í verðhækkun vöru með lítinn veltuhraða eins og eldsneyti,“ segir í Morgunkorni.

Á segir Greining Glitnis að dreggjar verðhækkunar vegna gengislækkunar fyrr á árinu eru enn að dreitla inn í verð innfluttrar vöru en stærsta gusan komi fram í apríl mælingu VNV.

„Verðhækkun eldsneytis hefur haldið áfram erlendis og áhrif þess verða nokkur í júní. Innlendur kostnaðarþrýstingur er einnig enn til staðar en við reiknum með að það muni draga úr honum þegar líður á árið,“ segir í Morgunkorni.

VNV fyrir júní verður birt 26. júní.

Dregur úr verðbólgunni næsta vetur

Þá gerir Greining Glitnis ráð fyrir að eftir að kröftugu verðbólguskoti á 2. ársfjórðungi ljúki má ætla að nokkuð hratt muni draga úr verðbólgu, „en hér er þó gert ráð fyrir að ársverðbólgan muni mælast yfir 10% fram í október,“ segir í Morgunkorni.

„Frá og með haustinu teljum við að hratt muni draga úr árshraða verðbólgunnar, að hún verði  nálægt 8,5% í árslok og að 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans náist um mitt næsta sumar og verði undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans á seinni hluta næsta árs.“

Greining Glitnis segir að forsendur þess að þetta gangi eftir vera fyrst og fremst þær að gengi krónunnar taki að hækka á ný í sumar og að krónan styrkist hægt og bítandi út spátímabilið.

„Óvissan í þeim efnum er þó í þá átt að það taki erlenda markaði lengri tíma að ná jafnvægi með aðgengi að erlendum lánamörkuðum á nýjan leik, en það er mikilvæg forsenda þess að krónan taki að hressast aftur. Jafnframt skiptir ró á vinnumarkaði miklu. Verði farið af stað með nýjar og meiri launakröfur en þegar hefur verð samið um eykst hættan á víxlverkun launa, verðbólgu og gengis en slíkt myndi óhjákvæmilega hafa aukna verðbólgu í för með sér,“ segir Greining Glitnis í Morgunkorni.