Greining Glitnis spáir því í Morgunkorni sínu að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig á fimmtudaginn og að stýrivextir verði í kjölfarið 15,75%.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands kemur saman í vikunni til að ákvarða stýrivexti og vaxtatilkynningar er að vænta á fimmtudagsmorgun.

„Þrátt fyrir að þróun íbúðaverðs, einkaneyslu og nýskráningar bifreiða bendi nú til þess að hagkerfið kólni hröðum skrefum teljum við að verðbólguþrýstingur í hagkerfinu sé viðvarandi, ekki síst vegna gengislækkunar krónunnar,“ segir í Morgunkorni.

Eins og kunnugt er mældist verðbólga 11,8% á ársgrundvelli í apríl og hefur ekki verið meiri í tvo áratugi.

„Þá er útlit fyrir að Seðlabankinn hafi vanmetið verðbólgu á öðrum ársfjórðungi um 1,5 til 2 prósentustig í þjóðhagsspá bankans sem birt var samhliða síðustu vaxtatilkynningu 10. apríl. Við teljum því að Seðlabankinn muni hækka vexti til að draga úr verðbólguvæntingum og varna enn frekari hækkun verðlags,“ segir í Morgunkorni.

Þá telur Greining Glitnis að hækkunin nú muni marka endalok vaxtahækkunarferils Seðlabankans sem staðið hefur yfir í fjögur ár.

„Jafnframt reiknum við með að bankinn muni hefja vaxtalækkunarferli í september og að vextir muni standa í 14,75% í lok þessa árs,“ segir í Morgunkorni.