Miðað við stöðu Kaupþings í lok fyrsta ársfjórðungs má áætla að Kaupþing þurfi að selja nærri 70 milljarða af gjaldeyri og kaupa krónur.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

„Við teljum að miðað við gjaldeyrisjöfnuð bankanna í lok fyrsta ársfjórðungs hafi Landsbanki og Glitnir haldið innan 10% gjaldeyrisstöðu af eigin fé en að staða Kaupþings hafi verið stærri en nýju reglurnar heimila,“ segir Greining Glitnis í Morgunkorni.

Greining Glitnis segir þessa útreikninga miðast við einfaldar forsendur og taka til dæmis ekki tillit til skattalegrar meðferðar á hagnaði af gjaldeyrishagnaði. Einnig er óvíst hvernig gjaldeyrisjöfnuður bankanna hefur þróast í maí en hugsast getur að einhver bankanna hafi lokað hluta af gjaldeyrisstöðu sinni.

Eins og fram kom í gær mun Seðlabankinn taka upp nýjar reglur um gjaldeyrisjöfnuð fjármálafyrirtækja í byrjun júlí. Nýju reglurnar kveða á um að misvægi erlendra eigna og skulda má mest nema 10% af eigin fé hverju sinni í stað 30% áður.

Eftir sem áður munu fjármálafyrirtæki sem reka umsvifamikla starfsemi erlendis þó hafa heimild til að hafa umfram gjaldeyrisjöfnuð til að verja sig gegn neikvæðum gengisáhrifum á eiginfjárhlutföll.

Þá kemur fram að Seðlabankinn gefur út yfirlit yfir gjaldeyrisstöðu móðurfélaga bankanna kl. 16 í dag en það gefur innsýn í þróun gjaldeyrisjafnaðar bankanna í maí.

„Það hefði verið heppilegra að Seðlabankinn hefði gefið út áðurgreint yfirlit samhliða tilkynningunni um breytingar á gjaldeyrisjöfnuði til að koma í veg fyrir óþarfa óvissu,“ segir Greining Glitnis.